Egill á OTC í Mittersill

Egill
Egill

Í gær fór Egill Blöndal ásamt fimm öðrum íslenskum júdómönnum til Austurríkis í OTC (Olympic Trainings Camp) æfingabúðirnar í Mittersill og mun æfa þar næstu fimm daga tvisvar á dag ásamt mörgum bestu júdómönnum heims en þetta eru öflugustu æfingabúðirnar ár hvert á vegum EJU.

Þátttaka okkar manna er meðal annars undirbúningur þeirra fyrir Reykjavík Judo Open sem haldið verður 23. janúar í Laugardalshöllinni. Þeir sem fóru ásamt Agli eru Þormóður Jónsson, Sveinbjörn Iura, Gísli Vilborgarson og Breki Bernharðsson. Logi Haraldsson átti einning að vera í hópnum en komst ekki með.

Frá þessu var greint á heimasíðu JSÍ.