Egill hlaut afreksstyrk hjá Landsbankanum

Afreksstyrkir_Landsbankans_EgillBlöndal
Afreksstyrkir_Landsbankans_EgillBlöndal

Júdómaðurinn Egill Blöndal var í hóp ellefu framúrskarandi íþróttamanna fengu úthlutað afreksstyrkjum úr Samfélagssjóði Landsbankans í seinustu viku.

Í fréttatilkynningu frá Landsbankanum kemur fram að alls var úthlutað þremur milljónum króna  úr sjóðnum. Fjórir fengu 400.000 króna styrk, en þeir eru allir í fremstu röð íslenskra íþróttamanna og sjö afreksmenn framtíðarinnar fengu 200.000 króna styrk hver. Þetta er í annað sinn sem Landsbankinn veitir afreksstyrki undir þessum formerkjum og bárust nú 177 umsóknir um þá.

Markmið styrkjanna er að styðja við bakið á afreksfólki sem iðkar einstaklings- eða paraíþróttir. Styrkirnar dreifast mjög vel milli íþróttagreina og félaga. Allir styrkþegar hafa náð langt og geta státað af framúrskarandi árangri bæði innanlands og á erlendum vettvangi. Tveir skíðamenn hljóta styrki að þessu sinni, á ári vetrarólympíuleika, en annar þeirra er fulltrúi alpagreina en hinn norræna skíðagreina.

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans segir: „Landsbankinn hefur um árabil stutt dyggilega við íslenskt íþrótta- og æskulýðsstarf og afreksstyrkirnir eru mikilvæg viðbót við þann stuðning. Við leggjum áherslu á að styðja við þá sem þegar hafa náð langt en einnig við ungt og efnilegt íþróttafólk. Með því viljum við reyna að gera fleirum kleift að ná afburðaárangri á sínu sviði.”

Í dómnefnd afreksstyrkja sátu Þórdís Lilja Gísladóttir lektor við Háskólann í Reykjavík, sem jafnframt var formaður, Ómar Bragi Stefánsson verkefnastjóri hjá UMFÍ og Finnur Sveinsson, sérfræðingur Landsbankans í samfélagsábyrgð. Skipanin  er í samræmi við þá stefnu bankans að fagfólk utan hans myndi jafnan meirihluta í dómnefnd.

Eftirtaldir hlutu afreksstyrki að upphæð 400.000 kr.

  • Guðmundur Sverrisson, spjótkastari í ÍR
  • Helga María Vilhjálmsdóttir, skíðakona í ÍR
  • Kári Gunnarsson, badmintonmaður í TBR
  • Sævar Birgisson, skíðagöngumaður í Skíðafélagi Ólafsfjarðar

Eftirtaldir hlutu afreksstyrki framtíðarinnar að upphæð 200.000 kr.

  • Anna Sólveig Snorradóttir, kylfingur í Golfklúbbnum Keili
  • Egill Blöndal, júdómaður í Ungmennafélagi Selfoss
  • Emil Tumi Víglundsson, hjólreiðamaður í Hjólreiðafélagi Reykjavíkur
  • Hilmar Örn Jónsson, skylmingamaður í FH
  • Íris Ósk Hilmarsdóttir, sundkona í Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar
  • Kristmundur Gíslason, taekwondomaður í Íþrótta- og ungmennafélagi Keflavíkur
  • Norma Dögg Róbertsdóttir, fimleikakona í Gerplu

Samfélagssjóður Landsbankans veitir fimm tegundir styrkja á hverju ári: Námsstyrki, samfélagsstyrki, nýsköpunarstyrki, umhverfisstyrki og afreksstyrki.

---

Egill ásamt Þórdísi Gísladóttur og Jensínu Kristínu Böðvarsdóttir framkvæmdastjóra þróunar og mannauðs hjá Landsbankanum.
Mynd: Landsbankinn.