Einstakur atburður á JÁVERK-vellinum

Sveinbjornssynir
Sveinbjornssynir

Sá skemmtilegi og líklega einstaki atburður átti sér stað á JÁVERK-vellinum á Selfossi í gærkvöldi að feðgar dæmdu leik Árborgar og Skínanda í 4. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu.

Þarna voru á ferðinni Sveinbjörn Másson, vallarstjóri á JÁVERK-vellinum, og synir hans þeir Karel Fannar og Adam Örn.

Sveinbjörn var aðstoðardómari, Adam var á hliðarlínunni á móti honum og inni á vellinum sá Karel um dómgæsluna. Aron, þriðji bróðirinn, var starfsmaður á vellinum á sama tíma.

Líklega er þetta í fyrsta skipti sem feðgar dæma opinberan leik í meistaraflokki á Íslandi.

Sjá frétt um leikinn á vef Sunnlenska.is.