Eva María með sigur á PSU National Open

Eva María með flott stökk í hástökkinu
Eva María með flott stökk í hástökkinu

Eva María Baldursdóttir  sem keppir fyrir Pittsburgh sigraði í hástökki á PSU National Open þegar hún vippaði sér yfir 1.79m.  Eva María var örugg í öllum sínum tilraunum og uppskar sigur að lokum eftir harða keppni. Umstökk þurfti til að skera út um sigurvegara hástökkskeppninnar.  Frábær byrjun á keppnistímabilinu hjá Evu Maríu en á árinu 2025 bætti hún sinn persónulega árangur þegar hún stökk 1.84m.