Fimleikafólk heiðrað á Minningarmót

Minningarmót Verðlaunahafar 2014 - vefur
Minningarmót Verðlaunahafar 2014 - vefur

Minningarmótið um Magnús Arnar Garðarsson fór fram í íþróttahúsinu Iðu sunnudaginn 11. maí. Iðkendur frá 1. bekk og upp úr tóku þátt og sýndu æfingar sínar fyrir foreldra og dómara. Í lokin fengu allir viðurkenningarpening og í lok seinni hluta fóru fram hefðbundnar verðlaunaafhendingar deildarinnar.

Á myndinni má sjá verðlaunahafa þessa árs en talið frá vinstri eru Rannveig Harpa Jónþórsdóttir efnilegasti unglingurinn í stúlknaflokki, Konráð Oddgeir Jóhannsson efnilegasti unglingurinn í drengjaflokki, Unnar Freyr Bjarnason og Linda Guðmundsdóttir hlutu viðurkenningu fyrir framfarir og ástundun og að lokum Þórdís Eva Harðardóttir sem var kosin félagi ársins í deildinni. Þann titil hlýtur sá sem hefur verið áberandi í starfinu yfir veturinn. Sýnt mikinn dugnað og eljusemi í starfinu og verið öðrum fyrirmynd.

Glæsilegir fulltrúar sem eru vel að titlunum komin. Til hamingju öll.

ob

---

Mynd: Umf. Selfoss/Inga Heiða Heimisdóttir.