Fimm einstaklingar heiðraðir á aðalfundi knattspyrnudeildar

knattspyrna-adalfundur-2
knattspyrna-adalfundur-2

Á aðalfundi knattspyrnudeildar Selfoss sem fór fram 30. nóvember var stjórn deildarinnar öll endurkjörin undir styrkri stjórn Adólfs Ingva Bragasonar formanns.

Á fundinum kom fram að rekstur deildarinnar er góður. Gjöld hafa dregist saman auk þess sem tekjur ársins voru meiri en ráð var fyrir gert í fjárhagsáætlun, einkum vegna félagaskipta Jóns Daða Böðvarssonar og Viðars Arnar Kjartanssonar ásamt því að KSÍ úthlutaði veglegum styrk til aðildarfélaga sinna vegna árangurs íslenska landsliðsins á EM í sumar.

Á fundinum fékk Björn Ingi Gíslason heiðursfélagi deildarinnar afmælisgjöf í tilefni af 70 ára afmæli hans. Þá fengu f.v. Hermann Ólafsson, Helena Sif Kristinsdóttir, Selma Sigurjónsdóttir, Alma Sigurjónsdóttir og Sævar Þór Gíslason silfurmerki Umf. Selfoss fyrir afar fórnfúst og gott starf fyrir félagið.

Í lok fundar kynnti stjórn deilarinnar hugmyndir starfshóps um uppbyggingu á fjölnota íþróttahúsi á Selfossi við jákvæðar undirtektir fundarmanna.

---

Á mynd með frétt eru f.v. Gissur Jónsson framkvæmdastjóri Umf. Selfoss, Hermann, Helena Sif, Selma, Alma, Sævar Þór og Guðmundur Kr. Jónsson formaður Umf. Selfoss.
Á mynd fyrir neðan eru Björn Ingi (t.v.) og Adólf Ingvi.
Ljósmyndir: Umf. Selfoss/Guðmundur Karl

knattspyrna-adalfundur-1