Frjálsíþróttaskóli HSK 2017

13394164_10154121135726327_144099076198388135_n
13394164_10154121135726327_144099076198388135_n

Í sumar verður Frjálsíþróttaskóli UMFÍ starfræktur í níunda sinn á HSK svæðinu og í ár er hann á Selfossi 11.-15. júní og er haldinn í samstarfi við Frjálsíþróttaráð HSK. Skólinn er ætlaður fyrir börn á aldrinum 11 til 18 ára. Ungmennin koma saman á hádegi á sunnudegi en skólanum lýkur á hádegi á fimmtudegi í sömu viku. Aðaláhersla er lögð á kennslu í frjálsum íþróttum.

Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg það er til dæmis farið í sund, leiki, haldnar kvöldvökur og endar skólinn svo með móti og pylsuveislu. Þáttökugjald í skólann er kr. 25.000 (kr. 20.000 fyrir systkini) en innifalið í því er kennsla, fæði, gisting o.fl. Skólinn er í samvinnu við Frjálsíþróttasamband Íslands og Ungmennafélag Íslands. Aðalumsjónarmenn með skólanum 2017 líkt og undafarin ár eru Ágústa Tryggvadóttir og Fjóla Signý Hannesdóttir en einnig munu fleiri þjálfarar og aðstoðarmenn vinna við skólann. Lagt er upp með að fagmenntaðir kennarar sjái um kennsluna á hverjum stað til að tryggja sem besta kennslu fyrir ungmennin.

Í lok námskeiðsins fá öll ungmennin viðurkenningarskjal til staðfestingar um þátttökuna. Skólinn hefur fengið eindæma góð viðbrögð og ungmennin hafa farið sátt heim eftir lærdómsríka, krefjandi en umfram allt skemmtilega viku.

Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki í að opna augu ungmenna fyrir ágæti íþróttaiðkunar og styðja fjölmargar rannsóknir þá fullyrðingu að ungmenni sem stunda íþróttir leiðast síður út í óreglu síðar á lífsleiðinni. Síðast en ekki síst öðlast ungmennin tækifæri til að kynnast hvert öðru og mynda tengslanet og auka hæfni sína í mannlegum samskiptum.

Undafarin tvö ár hefur skólinn fullbókaður en hámarkið er við 60 iðkendur. Skólinn á Selfossi 2015 og 2016 var sá fjölmennasti sem haldin hefur verið frá upphafi. Því er mikilvægt að tryggja sér snemma pláss í skólanum.

Skráning fer fram í gegnum tölvupóst fjolasigny@gmail.com og agustat@hotmail.com.

Pósturinn þarf að innihalda eftirfarandi:
Nafn
Heimilisfang
Staður
Kennitala (barns)
Sími
Netfang
Nafn forráðarmanns
Sími forráðarmanns
Ofnæmi eða annað sem gott er að vita

Búið er að stofna Facebook hópinn Frjálsíþróttaskóli á Selfossi 2017 þar sem hægt er að fylgst með skólanum 2017.

Ef það eru einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband.

Hér fyrir neðan má sjá dagskránna í skólanum frá því í fyrra. Ekki er hægt að tryggja að hún verði nákvæmlega eins í ár en hún verður svipuð.

screen-shot-2017-03-02-at-22-41-58