Frjálsíþróttasumarbúðir FRÍ á Selfossi

Frjálsíþróttaskóli 2021 (2)
Frjálsíþróttaskóli 2021 (2)

Í sumar verða Frjálsíþróttasumarbúðir FRÍ starfræktar í þrettánda sinn á HSK svæðinu. Sumarbúðirnar verða haldnar á Selfossi dagana 27. júní til 1. júlí. Sumarbúðirnar eru ætlaðar fyrir börn á aldrinum 11 til 16 ára hvaðan sem er af landinu og ekki er gerð krafa um að barnið hafi áður stundað frjálsar íþróttir. Ungmennin koma saman um miðjan dag á sunnudegi og skólanum lýkur um hádegi á fimmtudegi í sömu viku.

Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg, í bland við frjálsíþróttaæfingar er til dæmis farið í sund, bíóferð, ýmis konar leiki s.s. ljósmyndaratleik og hópefli, haldnar kvöldvökur og endar skólinn svo með frjálsíþróttamóti. Þátttökugjald í skólann er aðeins kr. 26.000 (kr. 21.000 fyrir systkini) en innifalið í því er þjálfun, fræðsla, fæði, gisting, bíóferð og önnur afþreying.

Aðalumsjónarmenn með sumarbúðunum líkt og undanfarin ár eru Ágústa Tryggvadóttir og Fjóla Signý Hannesdóttir. Einnig munu fleiri þjálfarar og aðstoðarmenn vinna við skólann. Lagt er upp með að fagmenntaðir kennarar sjái um kennsluna á hverjum stað til að tryggja sem besta kennslu fyrir ungmennin.

Í lok námskeiðsins fá öll ungmennin viðurkenningarskjal til staðfestingar um þátttökuna. Sumarbúðirnar hafa fengið eindæma góð viðbrögð og ungmennin hafa farið sátt heim eftir lærdómsríka, krefjandi en umfram allt skemmtilega viku.

Sumarbúðirnar gegna mikilvægu hlutverki í að opna augu ungmenna fyrir ágæti íþróttaiðkunar og styðja fjölmargar rannsóknir þá fullyrðingu að ungmenni sem stunda íþróttir leiðast síður út í óreglu síðar á lífsleiðinni. Síðast en ekki síst öðlast ungmennin tækifæri til að kynnast hvert öðru og mynda tengslanet og auka hæfni sína í mannlegum samskiptum. Sterk vináttutengsl hafa myndast á milli barnanna þessa viku. 

Undanfarin ár hafa sumarbúðirnar oft verið full bókaðar en hámarkið er við 60 iðkendur. Því er mikilvægt að tryggja sér snemma pláss í sumarbúðunum. 

Skráning fer fram í gegnum tölvupóst frjalsithrottaskoli@gmail.com

Pósturinn þarf að innihalda eftirfarandi:
Nafn
Heimilisfang
Staður
Kennitala (barns)
Félag (ef barnið er að æfa með félagi)
Sími 
Netfang
Nafn forráðarmanns
Sími forráðarmanns
Ofnæmi eða annað sem gott er að vita-

Við erum búin að stofna Facebook hóp, þið getið séð á Frjálsiþróttasumarbúðir á Selfossi 2021. Þar getið þið fylgst með sumarbúðunum. Við setjum inn tilkynningar og myndir á hópinn.

Ef það eru einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband við okkur.

Dagskráin í sumarbúðunum  frá því í fyrra má sjá hér í viðhengi. Ekki er hægt að tryggja að hún verði nákvæmlega eins í ár en hún verður svipuð.

Bestu kveðjur
Fjóla Signý og Ágústa.
Sími 660 8038 / 866 5596