Fyrsta Grýlupottahlaupið 2019

Frjálsar - Grýlupottahlaup 2016
Frjálsar - Grýlupottahlaup 2016

Fyrsta Grýlupottahlaup ársins 2019 fór fram á Selfossvelli laugardaginn 6. apríl. Þátttakendur voru um eitt hundrað í þessu skemmtilega 50 ára gamla hlaupi sem nýtur sífelldra vinsælda meðal Selfyssinga. Vonandi verður framhald á góðri mætingu og að veðrið verði milt og gott næstu laugardaga.

Úrslit úr hlaupinu má finna á vefsíðu Sunnlenska.is.

Annað hlaup ársins fer fram nk. laugardag 13. apríl. Skráning hefst kl. 10:00 og er fólk hvatt til að mæta tímanlega til að forðast biðraðir.

---

Ljósmynd úr safni Umf. Selfoss