Glæsilegur árangur á Gautaborgarleikunum

Frjálsar í Gautaborg - Hildur Helga
Frjálsar í Gautaborg - Hildur Helga

Gautaborgarleikarnir 2016 fóru fram í Svíþjóð helgina 1.-3. júlí. Stór hópur frá frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss tók þátt í leikunum eða 28 keppendur ásamt hópi foreldra og þjálfara, alls 40 manns.

Keppendur náðu mjög góðum árangri á mótinu og litu margar og góðar bætingar dagsins ljós. Hæst bera fimm verðlaunasæti ásamt þremur HSK metum.

Helga Margrét Óskarsdóttir vann til gullverðlauna í spjótkasti í flokki 15 ára, kastaði 39,37 metra. Kastað var 500 gramma spjóti í þessum flokki á mótinu en á Íslandi er kastað 400 gramma spjóti í þessum aldursflokki.

Hákon Birkir Grétarsson vann til silfurverðlauna í 80 metra grindahlaupi í flokki 14 ára, á nýju Íslandsmeti, 11,88 sekúndum.

Tryggvi Þórisson vann til silfurverðlauna í hástökki í flokki 14 ára en hann stökk 1,67 metra.

Vilhelm Freyr Steindórsson vann til bronsverðlauna í spjótkasti í flokki 14 ára en hann kastaði 43,17 metra.

Hildur Helga Einarsdóttir vann til bronsverðlauna í spjótkasti í flokki 14 ára en hún kastaði 37,59 metra. Kastað var 500 gramma spjóti í þessum flokki á mótinu en á Íslandi er kastað 400 gramma spjóti í þessum aldursflokki.

Dagur Fannar Einarssonar setti HSK met í 800 metra hlaupi í flokki 14 ára, 2:14,60 mínútur, en metið var orðið 34 ára gamalt. Eva María Baldursdóttir setti HSK met í þrístökki í flokki 13 ára er hún stökk 10,93 metra. Einnig setti Vilhelm Freyr Steindórsson HSK met í sleggjukasti í flokki 14 ára þegar hann kastaði 38,15 metra og bætti eldra met um hvorki meira né minna en 12 metra.

hsh

---

Hildur Helga, Tryggvi og Vilhelm Freyr á verðlaunapalli í fallega vínrauða félagslitnum. Því miður náðist ekki nægjanlega góð mynd af Helgu Margréti og Hákoni Birki á verðlaunapalli.
Ljósmyndir: Umf. Selfoss/Þuríður Ingvarsdóttir

Frjálsar í Gautaborg - Vilhelm Freyr Frjálsar í Gautaborg - Tryggvi