Grunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum

Grunnskólamót Árborgar 2014
Grunnskólamót Árborgar 2014

Grunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum verður haldið í 17. sinn miðvikudaginn 20. maí 2015 og fer keppnin fram á frjálsíþróttavellinum á Selfossi.

Klukkan 16:30 hefst keppni í 1.-4. bekk og klukkan 18:00 hefst keppni í 5.-10. bekk.

Keppt er í eftirfarandi flokkum og greinum hjá stelpum og strákum:

  • 1.-2. bekkur – 60 m hlaup, langstökk og kúluvarp (2 kg)
  • 3.-4. bekkur – 60 m hlaup, langstökk og kúluvarp (2 kg)
  • 5.-6. bekkur – 60 m hlaup, langstökk og kúluvarp (2 kg / 3 kg)
  • 7.-8. bekkur – 100 m hlaup, langstökk, kúluvarp (3 kg / 4 kg) og spjótkast (400 gr / 600 gr)
  • 9.-10. bekkur – 100 m hlaup, langstökk, kúluvarp ( 3 kg / 5 kg) og spjótkast (600 gr / 700 gr)

Allir í 1.-4. bekk fá þátttökuverðlaun en veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í 5.-10. bekk.

Hver keppandi í 1.-4. bekk fær þrjár tilraunir bæði í langstökki og kúluvarpi. Í 5.-10. bekk fær hver keppandi fjórar tilraunir í kúluvarpi og langstökki auk þess sem keppendur í spjótkasti í 7.-10. bekk fá fjórar tilraunir.

Skráningum skal skila eigi síðar en mánudaginn 18. maí á netfangið helgihar@simnet.is eða til íþróttakennara í viðkomandi skóla.

Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Anna Guðjónsdóttir í símum 482-3182 eða 892-7052.