Gunnar hættir að loknu tímabilinu

Selfoss_merki_nytt
Selfoss_merki_nytt

Stjórn knattspyrnudeildar Selfoss hefur ákveðið að nýta uppsagnarákvæði í samningi sínum við Gunnar Guðmundsson þjálfara meistaraflokks karla að loknu tímabilinu. Gunnari eru þökkuð góð störf þau tvö ár sem hann hefur starfað fyrir félagið og mun hann stýra liðinu út tímabilið. Þetta gefur stjórn deildarinnar góðan tíma til að finna arftaka Gunnars fyrir næsta keppnistímabil.

Stjórn Knattspyrnudeildar Umf. Selfoss