Héraðsþing HSK fór fram í Hveragerði

hsk_rgb
hsk_rgb

Rúmlega 100 manns mættu á héraðsþing HSK sem haldið var á Hótel Örk laugardaginn 11. mars. Fram kemur á vef HSK að á þinginu var lögð fram vegleg ársskýrsla um störf sambandsins á liðnu ári, ásamt því að í skýrslunni eru stutt yfirlit um störf aðildarfélaga sambandsins.

50 ár eru síðan ársskýrsla HSK kom fyrst út á prenti. Það fór því vel á því að í ár var ársskýrslan í fyrsta sinn öll prentuð í lit. Nálgast má ársskýrsluna á vef HSK.

Breytingar urðu á stjórn sambandsins. Rut Stefánsdóttir gaf ekki kost á sér áfram og var Baldur Gauti Tryggvason kosinn meðstjórnandi, en hann átti sæti í varastjórn. Gísli Örn Brynjarsson, Umf. Biskupstungna var kosinn nýr í varastjórn.

Stjórn sambandsins sem var kosin á þinginu skipa þau, Guðríður Aadnegard formaður, Guðmundur Jónasson gjaldkeri, Helgi S. Haraldsson varaformaður, Anný Ingimarsdóttir ritari og Baldur Gauti Tryggvason meðstjórnandi. Í varastjórn eru Gestur Einarsson, Olga Bjarnadóttir og Gísli Örn Brynjarsson.

Jón Jónsson fyrrvarandi formaður HSK var sæmdur gullmerki HSK fyrir sín störf fyrir sambandið í áratugi. Guðríður Aadnegard formaður HSK var sæmd gullmerki ÍSÍ og silfurmerki ÍSÍ hlutu Baldur Gauti Tryggvason Umf. Þjótanda og Rut Stefánsdóttir Hestamannafélaginu Sleipni. Starfsmerki UMFÍ hlutu þau María Rósa Einarsdóttir, Dímon, Olga Bjarnadóttir Selfossi og Valdimar Hafsteinsson Hamri.

Reikningar sambandsins voru lagðir fram og samþykktir samhljóða. 681.046 kr. hagnaður  varð af rekstri sambandsins á síðasta ári. Hagnaður er meiri en áætlun gerði ráð fyrir, skýrast það af stærstum hluta af meiri lottótekjum en áætlanir gerðu ráð fyrir. Sambandið skuldar ekkert og er eigið fé 18,3 milljónir.

Góðar umræður voru í nefndum þingsins og um 20 tillögur voru samþykktar. Nánar verður fjallað um tillögurnar í næstu HSK fréttum.

Íþróttafólk í 21 íþróttagrein sem stundaðar eru innan sambandsins var heiðrað og úr þeirra hópi var Margrét Lúðvígsdóttir, fimleikakona úr Umf. Selfoss, valin íþróttamaður HSK 2016.

Ýmis sérverðlaun voru veitt á þinginu. Íþróttafélagið Dímon var stigahæsta félagið, Golfklúbbur Selfoss fékk unglingabikar HSK og frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss hlaut foreldrastarfsbikar HSK. Þá var Kjartan Lárusson valinn öðlingur ársins.

Samkvæmt venju fór sleifarkeppni HSK fram á þinginu og þar sigraði Rut Stefánsdóttir Hestamannafélaginu Sleipni og Guðmundur Pálsson Umf. Selfoss var útnefndur matmaður þingsins.

Forysta HSK vill þakka öllum þeim sem komu að undirbúningi þinghaldsins. Forystu Íþróttafélagsins Hamars og hótelhöldurum á Örk er sérstaklega þakkað fyrir frábæra umgjörð þingsins og góðar móttökur. Hveragerðisbæ er þakkaður stuðningurinn en sveitarfélagið bauð þingfulltrúum og gestum til hádegisverðar á þinginu. TRS á Selfossi eru færðar þakkir fyrir veittan stuðning og Arionbanka við kostun verðlaunagripa á hátíðinni. Fleiri myndir frá þinginu má sjá á vef HSK.