ÍSÍ | Guðmundur Kr. heiðursfélagi og Olga kosin í stjórn

Íþróttaþing ÍSÍ 2019 (6)
Íþróttaþing ÍSÍ 2019 (6)

74. Íþróttaþing Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands var haldið í Reykjavík um síðustu helgi. Þingfulltrúar voru vel á annað hundrað fulltrúa af öllu landinu.  Fulltrúar HSK á þinginu voru þau Guðríður Aadnegard, Helgi S. Haraldsson, Guðmundur Jónasson, Olga Bjarnadóttir, Engilbert Olgeirsson, Gissur Jónsson og Jana Lind Ellertsdóttir, sem mætti sem varafulltrúi seinni daginn.

Þrír einstaklingar af sambandssvæði HSK voru heiðruð á þinginu. Hrafnhildur Guðmundsdóttir í Þorlákshöfn og Guðmundur Kr. Jónsson Selfossi voru kosin heiðursfélagar ÍSÍ og Jón M. Ívarsson frá Vorsabæjarhól var sæmdur heiðurskrossi sambandsins.

Tíu aðilar voru í framboði til sjö sæta í stjórn ÍSÍ til fjögurra ára. Olga Bjarnadóttir á Selfossi var kjörin í stjórn, en hún var að gefa kost á sér í fyrsta skipti. Gunnar Bragason frá Hellu var endurkjörinn og því eru þrír Sunnlendingar í nýju stjórninni en Selfyssingurinn Þráinn Hafsteinsson var kosinn til fjögurra ára á íþróttaþingi 2017.  Reykvíkingurinn Knútur G. Hauksson kom nýr inn í stjórn, en hann er formaður Golfklúbbs Öndverðarness. Aðrir sem náðu kjöri eru Ása Ólafsdóttir, Hafsteinn Pálsson, Ingi Þór Ágústsson og Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir.

Lárus Blöndal forseti ÍSÍ var kjörinn til fjögurra ára á Íþróttaþingi ÍSÍ árið 2017 og á því tvö ár eftir af kjörtímabilinu. Þá voru einnig sjö meðstjórnendur kjörnir til fjögurra ára, þeir eru Garðar Svansson, Lilja Sigurðardóttir, Sigríður Jónsdóttir, Úlfur H. Hróbjartsson, Viðar Garðarsson, Þórey Edda Elísdóttir og Þráinn Hafsteinsson. Úr stjórn ganga Guðmundur Ágúst Ingvarsson, Jón Finnbogason og Örn Andrésson og var þeim þakkað sérstaklega fyrir góð störf í framkvæmdastjórn ÍSÍ. 

Þess má geta að mjög fáir Sunnlendingar hafa átt sæti í stjórn ÍSÍ frá upphafi. Auk Gunnars, Þráins og Olgu eru það þau Sigurður Greipsson, Guðmundur Kr. Jónsson, Unnur Stefánsdóttir og Engilbert Olgeirsson.

Nánari fréttir af þinginu er að finna á vefsíðu ÍSÍ www.isi.is

Frétt af vef HSK