Ísland - Króatía í beinni útsendingu

auglýsing á viðburð í tíbrá
auglýsing á viðburð í tíbrá

Föstudaginn 16. nóvember næstkomandi verður spilaður stærsti leikur íslenska landsliðsins í knattspyrnu fyrr og síðar. Stelpurnar í meistaraflokki kvenna ætla að bjóða öllum krökkum í brjálaða stemningu í Tíbrá þar sem leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á stóra tjaldinu.

Húsið opnar kl. 18:30 og byrjar leikurinn kl. 19:00. Miðaverð er 1000 kr. en í miðaverði fylgir Svali, popp og happdrættismiði sem dregið verður um í hálfleik. Meðal vinninga eru  gamlar Selfosstreyjur áritaðar af atvinnumönnum frá Selfossi auk annara vinninga.

Viðburðurinn er hluti af fjáröflun vegna æfingaferðar stelpnanna en þær stefna á æfingabúðir á Spáni um páskana annað árið í röð.

Myndum frábæra stemningu í félagsheimilinu okkar og hristum kofann! Frábært tækifæri til að efla félagsandann hjá flokkunum okkar og félaginu.

ÁFRAM SELFOSS OG ÁFRAM ÍSLAND!!