Íþróttaskóli barnanna - Nýtt námskeið

Nýtt námskeið í íþróttaskóla barnanna hefst laugardaginn 18. janúar.

Kennt verður í Baulu, íþróttahúsi Sunnulækjarskóla. Kennarar á námskeiðinu eru Heiðrún Jóhanna Heiðarsdóttir íþróttafræðingur og Steinunn H. Eggertsdóttir grunnskólakennari og fimleikaþjálfari.

Námskeiðið er 10 skipti og er námskeiðsgjaldið kr. 10.000 sem greiðist við skráningu. Skráning fer fram laugardaginn 18. janúar í Baulu frá kl. 8:45.

Börn fædd 2011 og 2012 verða frá kl. 9:00-9:50 og börn fædd 2009 og 2010 frá kl. 10:00-10:50.

Hlökkum til að sjá sem flesta bæði nýja og eldri nemendur.