Karlalið Selfoss Íslandsmeistari í Futsal | Stelpurnar tóku silfur

futsal
futsal

Selfoss varð í dag Íslandsmeistari í Futsal í karlaflokki í fyrsta sinn í sögu félagsins þegar liðið vann 3-2 sigur gegn Víkingi Ólafsvík í æsispennandi úrslitaleik í Laugardalshöll.

Ólsarar hafa undanfarin ár verið langbesta lið landsins í innanhússboltanum og vann þennan titil þrisvar á fjórum árum.

Ólsarar voru 2-1 yfir í leiknum í dag en Selfyssingar áttu frábæra endurkomu og tryggðu sér nauman sigur.

Gylfi Dagur Leifsson og Ásgrímur Þór Bjarnason skoruðu sitt markið hvor fyrir Selfoss en sigurmark leiksins var sjálfsmark Emir Dokara. Þorsteinn Már Ragnarsson og Kristinn Magnús Pétursson skoruðu fyrir Ólafsvíkurliðið.

---

Það var einnig mikil spenna í úrslitaleiknum í kvennaflokki þar sem Álftanes vann 4-3 sigur gegn Selfossi. Þessi sömu lið léku til úrslita fyrir ári síðan en þá vann Selfoss. Álftanes kom fram hefndum í dag og vann sinn fyrsta Futsal Íslandsmeistaratitil. Erna Guðjónsdóttir skoraði tvívegis fyrir Selfoss og Eva Lind Elíasdóttir skoraði eitt.

iri

Frétt frá Fótbolta.net

---

Selfyssingar fagna fyrsta Íslandsmeistaratitli sínum í meistaraflokki.
Ljósmynd/KSÍ.IS