Kastþraut Óla Guðmunds - Stigamet hjá báðum kynjum

kastþraut_ólag_2015 (13)
kastþraut_ólag_2015 (13)

Árleg kastþraut Óla Guðmunds. fór fram föstudaginn 4. september síðastliðin í blíðskaparveðri á Selfossvelli. Keppni hófst kl. 17:12 og lauk 20:20.

Ellefu keppendur voru að þessu sinni. Góður árangur náðist og voru sett stigamet bæði í karla og kvennaflokki.

Hilmar Örn Jónsson FH rauf 4000 stiga múrinn í frysta sinn er hann náði 4012 stigum og bætti þar með sitt eigið met frá í fyrra. Árangur Hilmars varð eftirfarandi: sleggjukast 65,42 m, kringlukast 44,36 m, kúluvarp 14,93 m, spjótkast 42,97 m og lóðkast 20,54 m sem er Íslandsmet í 18-19 ára flokki. Í öðru sæti varð Jón Bjarni Bragason Breiðabliki með 3004 stig og í þriðja sæti varð gestgafinn sjálfur, Óli Guðmunds. Selfossi, með 2817 stig. Hann setti HSK met í sínum aldursflokki í spjótkasti með 43,62 m og í lóðkasti með 12,66 m.

Aðrir keppendur í karlaflokki voru: Ingi Rúnar Kristinsson Breiðablik, Hákon Haraldsson FH, Mímir Sigurðsson FH, Ástþór Jón Tryggvason Selfoss, Jamison Ólafur HSS, Styrmir Dan Steinunnarson Þór og Þorbergur Magnússon Þór.

Í kvennaflokki var Thelma Björk Einarsdóttir Selfossi eini keppandinn og hún fékk 2868 stig sem er bæting á meti Önnu Pálsdóttur Selfossi síðan 2012. Árangur Thelmu varð eftirfarandi: sleggjukast 35,07 m, kringlukast 35,95 m, kúluvarp 9,94 m, spjótkast 31,15 m og lóðkast 12,80 m. Thelma kastaði lóðinu 11,61 metra í fyrstu tilraun sem var bæting á HSK í hennar aldursflokki, sem er 18-19 ára. Hún gerði sér lítið fyrir og kastaði 12,80 metra í öðru kasti sem er bæting á HSK í hennar flokki og einnig bæting á HSK meti Önnu Pálsdóttir í kvennaflokki og í 20-22 ára flokki.

Kastþrautinni lauk svo með kaffi og verðlaunaafhendingu. Styrktaraðliðar þrautarinnar í gegnum tíðina eru Guðmundur Kristinn Jónsson og Lára Ólafsdóttir ásatm Bros auglýsingavörur í Reykjavík.

---

Mynd með frétt: Hópurinn sem tóka þátt ásamt starfsmönnum.

Mynd fyrir neðan: Verðlaunahafar í Kastþrautinni f.v. Jón Bjarni Breiðabliki, Thelma Björk Selfossi sigurvegari og methafi kvenna, Hilmar Örn FH sigurvegari og methafi karla og Ólafur Guðmundsson Selfossi.

Ljósmyndir: Umf. Selfoss

kastþraut_ólag_2015 (67)