Knattspyrnudómaranámskeið

domari
domari

Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið í Tíbrá fimmtudaginn 12. janúar klukkan 18:00.

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Selfoss. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi.

Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Námskeiðið er ókeypis og er skráning hafin á magnus@ksi.is.