Komdu í handbolta - Handboltaátak HSÍ

Þórir Ólafsson Ísland
Þórir Ólafsson Ísland

Núna er EM í handbolta byrjað og stendur yfir til sunnudagsins 26. janúar þegar Evrópumeistarar verða krýndir. Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) stendur nú í annað sinn fyrir átakinu „Komdu í handbolta” þar sem nýjum iðkendum er boðið að æfa handbolta. Selfoss hefur að því tilefni ákveðið að bjóða nýjum iðkendum að æfa ókeypis út janúar.

Markmið átaksins er að auka áhuga barna á handbolta og hefur HSÍ fengið íþróttakennara í grunnskólum landsins í lið með sér. Til að auka áhuga nemenda á handbolta verða íþróttakennarar með handboltaþema í kennslunni hjá sér á meðan á EM í handbolta í Danmörku stendur.

Ef áhugi á handbolta kviknar hjá krökkunum í íþróttatímunum, þá aukast líkurnar á að þau byrji að æfa handbolta hjá félögunum og það er það sem við viljum. Hjá Selfoss fá þau góða þjálfun sem bæði þroskar þau og gerir þau að betri handboltamönnum. Íþróttakennarar munu hvetja áhugasama nemendur til að fara á handboltaæfingar.

Við viljum hvetja þá krakka sem áhuga hafa á að prófa að æfa handbolta til að mæta á æfingar hjá Selfoss og við lofum að það verður tekið vel á móti þeim.

---

Landsliðsmaðurinn Þórir Ólafsson byrjaði að æfa handbolta með Selfossi í Vallaskóla.