Námskeiðið Verndum þau á Selfossi

Æskulýðsvettvangurinn
Æskulýðsvettvangurinn

Námskeiðið Verndum þau sem haldið er á vegum Æskulýðsvettvangsins verður haldið þriðjudaginn 9. september kl. 17.30 – 20.30 í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss,

Námskeiðið er byggt á efni bókarinnar Verndum þau og fjallar um hvernig bregðast eigi við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og unglingum. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem starfa með börnum og unglingum hjá sveitarfélögum, íþróttafélögum, æskulýðsfélögum og öðrum þeim sem áhuga hafa. Æskulýðsvettvangurinn gerir kröfu um að allir starfsmenn og sjálfboðaliðar innan æskulýðsvettvangsins sæki námskeiðið.

Höfundar bókarinnar, Ólöf Ásta Farestveit uppeldis- og afbrotafræðingur og Þorbjörg Sveinsdóttir M.Sc. í sálfræði, sjá um kennslu á námskeiðinu. Báðar starfa þær í Barnahúsi og hafa mikla reynslu af barnaverndarmálum.

Á námskeiðinu er farið yfir:

  • Tilkynningaskyldu starfsmanna sem vinna með börnum og unglingum.
  • Líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi og vanrækslu hvers konar.
  • Hvernig taka skuli á móti ofbeldisfrásögn.
  • Reglur í samskiptum við börn og ungmenni.
  • Ýmis atriði sem gott er fyrir vinnuveitendur að hafa í huga.
  • Úrræði sem í boði eru í samfélaginu fyrir börn og unglinga sem eru þolendur ofbeldis.

Skráning og upplýsingar eru hjá Ragnheiði Sigurðardóttur í síma 568 – 2929 eða á netfanginu ragnheidur@aeskulydsvettvangurinn.is

Við skráningu þarf að koma fram nafn, netfang og starfsvettvangur (aðildarfélag ÆV). Skráningafrestur rennur út 8. september kl. 16.00. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu. Hægt er að festa kaup á bókinni Verndum þau á kr. 2.500.

Léttar veitingar í boði og allir velkomnir!