Nýr hópleikur hefst á laugardag

Nýr hópleikur, haustleikur Selfoss getrauna, hefst laugardaginn 26. september. Aðalvinningur er ferð á leik í enska boltanum. Hægt er að skrá sig til leiks í Tíbrá, Engjavegi 50, þar sem er opið hús frá kl. 11-13 alla laugardaga í vetur.

Einnig er hægt að skrá sig í hópleikinn á slóðinni www.tippleikur.is/selfoss.

Styrkjum félagstengslin og mætum í Tíbrá á laugardagsmorgnum. Þar er alltaf heitt á könnunni og bakkelsi á boðstólum frá Guðnabakaríi.

Láttu vini þína, félaga og fjölskyldu vita og hvettu alla til að mæta með okkur. Við hlökkum til að sjá þig.

Selfoss getraunir og 2. flokkur kvenna og karla