Nýr samstarfssamningur Landsbankans og frjálsíþróttadeildar vegna Brúarhlaupsins

Landbankinn á Selfossi og Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss endurnýjuðu þann 15. ágúst sl. samstarfssamning sinn til næstu þriggja ára og með honum verður Landsbankinn áfram einn af aðalstyrkaraðilum Brúarhlaups Selfoss.

Brúarhlaup Selfoss var fyrst hlaupið á 100 ára afmæli Ölfusárbrúar við Selfoss árið 1991. Upp kom sú hugmynd hjá forráðamönnum Frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss að minnast afmælisins með því að standa fyrir almenningshlaupi á Selfossi og fékk hlaupið nafnið Brúarhlaup Selfoss. Allar götur síðan hefur Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss staðið fyrir hlaupinu ár hvert og alltaf fyrsta laugardag í september. Með vísan í nafn hlaupsins hafa hlaupin ávallt verið ræst á brúnni sjálfri.

Í ár verður hlaupið haldið í 22. sinn, laugardaginn 1. september n.k.

Þátttaka í hlaupinu hefur ávallt verið mikil og keppendur á bilinu 700 - 1.000 manns. Bæði er hlaupið og hjólað og er þetta eina almenningshlaupið í dag sem bíður uppá þessa tvo valkosti. Hjólaðir eru 5 km eða 10 km og hlaupnir 2,5 km, 5 km 10 km svo og hálft maraþon sem er 21,1 km.

Sú leið sem hlaupin er á flatlendinu á Selfossi hefur af reyndum hlaupurum verið talin ein sú "hraðasta" hér landi. Það þýðir að margir hlauparar eru að bæta tíma sinn og árangur í lok sumars með þátttöku í Brúarhlaupi Selfoss.

Landsbankinn og Frjálsíþróttadeildin hafa um árabil átt mjög ánægjulegt samstarf sem hefur verið báðum aðilum til gagns.

Með endurnýjun samningsins vill Landsbankinn sýna í verki áhuga sinn og stuðning við æskulýðs- og íþróttamál og um leið leggja áherslu á forvarnarþátt þess starfs.

Mynd: Ágústa Þórhildur Sigurðardóttir, Landsbankanum, Helgi Sigurður Haraldsson, formaður Frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss og Gunnlaugur Sveinsson, útibússtjóri Landsbankans á Selfossi.