Nýr svartbeltingur á Selfossi

Ísak Máni
Ísak Máni

Ísak Máni Stefánsson er 16 ára Selfyssingur sem hefur æft með Taekwondodeild Selfoss síðan 2008. Hann hefur einnig tekið þátt í að þjálfa yngri iðkendur deildarinnar.

Ísak Máni þreytti svartbeltispróf 1. dan föstudaginn 26. september í sal Taekwondodeildarinnar í íþróttahúsinu Baulu á Selfossi. Hann hefur verið meiddur í hné síðastliðið ár og fór meðal annars í tvær aðgerðir vegna þess, þá seinni núna í vor. Hann var nýbúinn í aðgerðinni í júní, þegar félagar hans úr Taekwondodeild Selfoss þreyttu sín svartbeltispróf, og gat þess vegna ekki  tekið próf þá.

Ísak Máni hefur náð ótrúleg góðum bata með hjálp sjúkraþjálfara síns, Sigríðar Evu Guðmundsdóttur. Honum stóð til boða að mæta í sjúkrapróf hjá meistara sínum Sigursteini Snorrasyni, 6. dan síðastliðinn föstudag.

Í taekwondo fara beltapróf yfirleitt þannig fram að nokkrir þreyta prófið saman í hóp, en í þessu prófi þurfti hann að standa einn frammi fyrir prófdómurum sínum og framkvæma það sem fyrir hann var lagt.

Svartbeltispróf fara þannig fram að iðkendur þurfa að kunna allt það sem þeir hafa lært frá því þeir tóku fyrsta beltið (gul rönd) og því geta þessi próf verið ansi löng og strembin. Þau krefjast bæði úthalds og einbeitingar og tók prófið að þessu sinni um 2 klukkustundir. Það var því erfitt fyrir Ísak Mána að standa einn þar sem allra augu beindust aðeins að honum einum og minnstu mistök hefðu geta orðið dýr.

Það er skemmst frá því að segja að Ísak Máni stóð sig frábærlega og náði prófinu með glans og hefur því Taekwondodeild Selfoss eignast nýjan svartbelting.

 

Til hamingju Ísak Máni.

HMS

---

Ísak Máni er nýjasti svartbeltingur Selfyssinga.
Mynd: Umf. Selfoss/Helga Mjöll Stefánsdóttir

Ísak Máni 2