Selfoss í 3. sæti á Norden Cup

bronslid-norden-2016
bronslid-norden-2016

Árlega fer fram í Gautaborg milli jóla og nýárs Norden Cup - Norðurlandamót yngri flokka í handbolta. Mótið sækja bestu lið frá öllum Norðurlöndunum. Í ár fóru tvö lið frá Selfossi á mótið, 2003 og 2001 árgangar stráka en bæði lið urðu Íslandsmeistarar í sínum flokki seinasta vetur og tryggðu sér þannig þátttökurétt.

2003 liðið náði frábærum árangri á mótinu og vann til bronsverðlauna. Selfossliðið vann fimm af sex leikjum á mótinu og sýndi svo ekki verður um villst að þeir eru með eitt allra besta liðið á Norðurlöndunum en liðið sigraði til að mynda Linköping frá Svíþjóð 24-13 í leiknum um þriðja sætið.

2001 liðið lék í elsta aldursflokki sem samanstendur af drengjum fæddum 2000 og 2001. Þrátt fyrir að leika gegn eldri liðum unnu þeir tvo leiki af fjórum í riðlinum og voru einungis einu marki frá fjórðungsúrslitum. Þeir enduðu að lokum í fimmtánda sæti með þrjá sigra í sjö leikjum eftir að hallað hafði undan fæti á næstseinasta leikdegi.