Selfyssingar skoruðu fyrir bæði landsliðin

Dagný gegn Ísrael
Dagný gegn Ísrael

Selfyssingar hafa farið mikinn með A-landsliðum Íslands í knattspyrnu seinustu daga og skoruðu fyrsta markið í öruggum 3-0 sigrum liðanna.

Selfyssingarnir Dagný Brynjarsdóttir og Guðmunda Brynja Óladóttir komu báðar við sögu í sigri íslenska kvennalandsliðsins á Ísrael í undankeppni HM. Dagný skoraði fyrsta mark leiksins eftir einungis 62 sekúndur. Gumma kom inn á sem varamaður tíu mínútum fyrir leikslok. Stelpurnar leika á morgun seinasta leiks sinn í riðlinum gegn Serbum á Laugardalsvelli.

Atvinnumennirnir Jón Daði Böðvarsson og Viðar Örn Kjartansson kom einnig við sögu í leik gegn Tyrkjum í undankeppni EM. Jón Daði var í byrjunarliðinu og skoraði fyrsta mark sitt fyrir Ísland á 18. mínútu. Honum var skipt út af á 90. mínútu og kom Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson inn á fyrir hann í sínum fyrsta landsleik.

Á vef Sunnlenska.is var rætt við Jón Daða og Viðar Örn eftir leik.

Glæsilegur árangur hjá Selfyssingum.

---

Myndir: Myndasafn KSÍ

Jón Daði geng Tyrklandi 2014 - vefur