Sex marka tap gegn FH

Atli Ævar Ingólfsson
Atli Ævar Ingólfsson

Selfyssingar töpuðu fyrir FH í Hleðsluhöllinni í kvöld með sex mörkum, 31-37.

Jafnræði var með liðunum fram á 12. mínútu en þá komust FH þremur mörkum yfir, úr 6-6 í 6-9.  Munurinn hélst 2-4 mörk út fyrri hálfleik og staðan í leikhléi 14-18.  Lítið gekk hjá Selfyssingum í seinni hálfleik.  FH byggðu upp forystu og náðu mest átta marka forskoti.  Selfyssingar minnkuðu muninn niður í sex mörk fyrir leikslok en sigur FH-inga var aldrei í hættu.  Lokatölur 31-37.

Mörk Selfoss: Atli Ævar Ingólfsson 10, Hergeir Grímsson 6/4, Haukur Þrastarson 4, Guðni Ingvarsson 3, Magnús Öder Einarsson 2, Reynir Freyr Sveinsson 2, Alexander Már Egan 2, Ísak Gústafsson 1, Guðjón Baldur Ómarsson 1.

Varin skot: Sölvi Ólafsson 11 (30%) og Einar Baldvin Baldvinsson 3 (20%)

Nánar er fjallað um leikinn á Vísir.is og Sunnlenska.is.

Næsti leikur hjá strákunum er á laugardaginn gegn ÍR í Austurbergi kl 16.00. Sama dag heimsækja stelpurnar Fram U. 


Atli Ævar var besti maður vallarins í kvöld með 10 mörk.
Sunnlenska.is / Guðmundur Karl