Stúlknaliðið algerlega brilleraði

kvk-lid
kvk-lid

Íslenska stúlknalandsliðið mætti heldur betur vel stemmt til leiks í dag.

Stelpurnar byrjuðu á gólfi og gerðu sér lítið fyrir og bættu einkunnina frá því í undanúrslitum um 1.733. Greinilegt að þær voru algerlega tilbúnar í verkefnið.

Á dýnu urðu smávægileg mistök í annari umferð en á heildina litið mjög góð frammistaða og bæting frá því í forkeppninni upp á 1.500.  Trampólínið gekk svo nokkuð vel, einkunnin lækkaði lítillega en það koma ekki að sök því íslenska liðið vann yfirburðasigur á því danska, með 55.283 stig gegn 53.450.

Í þriðja sæti urðu svo Svíar með 52.100 stig.

 

Frétt frá Fimleikasambandinu