Sundþjálfari óskast

Selfoss_merki_nytt
Selfoss_merki_nytt

 

Sunddeild Umf. Selfoss óskar eftir að ráða sundþjálfara til starfa.

Starfið felst í þjálfun barna og unglinga ásamt öðrum verkefnum sem falla undir starfssvið þjálfara s.s. rafrænar skráningar iðkenda, skráningar á mót og skráning á árangri iðkenda.

Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af sundþjálfun og/eða menntun á sviði íþróttafræða. Þekking á forritum frá Hy-tek og Splash er æskileg.

Viðkomandi verður að geta unnið með börnum og unglingum og verið þeim góð fyrirmynd.

Nánari upplýsingar gefa Sigríður Runólfsdóttir formaður sunddeildar í síma 895-9716 og Gissur Jónsson framkvæmdastjóri Umf. Selfoss í síma 894-5070.

Umsóknir skulu sendast á sigrid@husa.is.