Sveitarfélagið Árborg sækir um Unglingalandsmót 2018

Stjórn Ungmennafélags Íslands auglýsti í lok apríl  eftir umsóknum frá sambandsaðilum UMFÍ um að taka að sér undirbúning og framkvæmd 7. Landsmóts UMFÍ 50+ árið 2017 og 21. Unglingalandsmóts UMFÍ sem haldið verður um verslunarmannahelgina 2018 og var umsóknarfrestur til 31. maí sl.

Þrjú sveitarfélög á sambandsvæði HSK höfðu samband við stjórn HSK og sýndu áhuga á því að fá til sín mót og koma að umsókn með HSK um að halda umrædd mót.

Sveitarfélagið Ölfus og Sveitarfélagið Árborg vildu fá unglingalandsmót og Hveragerðisbær vildi fá 50+ mótið. Stjórn HSK ákvað að senda inn samtals þrjár umsóknir til UMFÍ vegna mótanna tveggja.

Ákvörðun stjórnar UMFÍ um mótsstaði verður væntanlega tekin fyrir á næsta stjórnarfundi, sem haldinn verður um miðjan júní.