Þór Llorens Þórðarson í Selfoss

thor_llorens_selfoss080219gk
thor_llorens_selfoss080219gk

Þór Llorens Þórðarson skrifaði í dag undir lánssamning við knattspyrnudeild Selfoss en Knattspyrnufélag ÍA lánar hann á Selfoss út komandi leiktíð.

Þór, sem er 19 ára gamall, er uppalinn hjá ÍA og spilaði með 2. flokki félagsins í fyrra auk þess að leika 9 leiki með liði Kára í 2. deildinni. Hann hefur einnig leikið þrjá landsleiki með U17 ára liði Íslands.

Þór er varnarmaður að upplagi, með baneitraðan vinstri fót og mun einnig nýtast vel í föstum leikatriðum en hann raðaði inn mörkum fyrir 2. flokk ÍA úr aukaspyrnum í fyrrasumar.

 

 

 

Þór Llorens og Sævar Þór Gíslason, gjaldkeri knattspyrnudeildarinnar, handsala samninginn. Ljósmynd/UMFS