Þór öruggur sigurvegari

Þór Íslandsmeistari 2014
Þór Íslandsmeistari 2014

Þór Davíðsson vann öruggan sigur í -100 kg flokki á Íslandsmótinu sem haldið var í Laugardalshöllinni á laugardag.

Þór sigraði með yfirburðum í sínum þyngdarflokki en hann tók einnig þátt í opna flokknum og varð þar í þriðja sæti. 

Fjórir keppendur frá Umf. Selfoss tóku þátt í mótinu auk Þórs. Egill Blöndal varð í 3. sæti í -90 kg flokki og í 5. sæti í opna flokknum.

Þá varð Þórdís Mjöll Böðvarsdóttir í 2. sæti í +78 kg flokki, Trostan Gunnarsson varð 5. í -100 kg flokki og Grímur Ívarsson varð 7. í -81 kg flokki.

Byggt á frétt Sunnlenska.is.

---

Þór hrósaði sigri í sínum þyngdarflokki.
Mynd: Umf. Selfoss/Gissur