Titill og HSK met á Bikarkeppni FRÍ

Kristinn Þór Bikarmeistari í 1500m hlaupi
Kristinn Þór Bikarmeistari í 1500m hlaupi

Hsk-Selfoss sendi ungt og efnilegt lið til keppni á Bikarkeppni frjálsíþróttasambandsins sem haldin var í kaplakrika laugardagin 18.mars síðastliðinn.

Mótið var allt hið glæsilegasta en var sú skemmtilega nýjung núna að það var DJ sem hélt uppi stuðinu á mótinu eins var Albert Þór Magnússon kynnir á mótinu og briddaði hann uppá allskonar nýjungum tók viðtöl við sigurvegara strax að loknum greinum og hélt uppi rífandi stemmningu.

Kristinn Þór kristinsson Bikarmeistari:

Hlauparinn reynslumikli Kristinn Þór Kristinsson sem mætti á dögunum með stæl aftur á hlaupabrautina kom sá og sigraði í 1500m hlaupi karla á sínum ársbesta tíma 4:00,70sek og bætti hann þar með sitt eigið HSK-met í flokki 30-34 ára um tæpar 7 sekúndur.

 

Hjálmar Vilhelm bætti 30 ára gamalt HSK-met föðurbróður síns um 1cm:

Hjálmar Vilhelm Rúnarsson spreytti sig í kúluvarpskeppninni og stóð hann sig vel og hafnaði í 5.sæti en Hjálmar sem er einungis 15ára gamall kastaði kúlunni 10,98m og er það nýtt HSK-met í flokki 15 ára pilta með karlakúlunni en hún er 7,26 kg, gamla metið var í eigu Einars Hjálmarssonar föðurbróður Hjálmars .

 

6.sætið í heildarstigakeppninni:

Stigasöfnunin gekk vel en lið HSK-Selfoss varð í 6.sæti í stigakeppninni af 7 liðum var ansi mjótt á mununum en HSK-Selfoss var með einu stigi meira en lið Ármanns og fjórum stigum minna en sameiginlegt lið Fjölnis/UFA. Verður gaman að fylgjast með þessu unga og skemmtilega liði þróast á næstu árum, stóðu þau sig mjög vel í keppni við þau allra bestu, einnig er mikill styrkur í því að hafa kempur eins og Fjólu Signýu Hannesdóttur sem er ný byrjuð að æfa aftur og Kristinn Þór í liðinu. Eins vantaði liðinu tvo af sínum allra sterkustu keppendum en þau Eva María Baldursdóttir og Örn Davíðsson áttu hvorugt heimangengt að þessu sinni.

Framtíðin er svo sannarlega björt í frjálsum.