Tveggja marka sigur hjá stelpunum

Katla Björg
Katla Björg

Stelpurnar áttu síðari leik tvíhöfðans í Hleðsluhöllinni í kvöld.  Þar unnu þær frískt lið ÍR í toppbaráttunni í Grill 66 deildinni, 24-22.

Selfyssingar náðu snemma frumkvæðinu í leiknum þó munurinn hafi ekki verið mikill.  Það var ekki fyrr en undir lok fyrri hálfleiks sem munurinn fór í fyrsta sinn yfir þrjú mörk, ÍR náði þó marki til baka og staðan í hálfleik 13-11.

Seinni hálfleikur var meira af því sama, Selfoss hélt frumkvæðinu án þess þó að hrista gestina af sér.  Þær héldu haus allt til leiksloka og sigur niðurstaðan, 24-22.

Mörk Selfoss: Hulda Dís Þrastardóttir 7/3, Katla María Magnúsdóttir 6, Katla Björg Ómarsdóttir 5, Agnes Sigurðardóttir 3, Elín Krista Sigurðardóttir 2, Rakel Guðjónsdóttir 1.

Varin skot: Henriette Østergaard 8 (26%)

Selfoss er því áfram í 3. sæti með 24 stig. Næsti leikur hjá stelpunum er n.k. sunnudag gegn Fjölni í Dalhúsum kl 16:00.  Við hvetjum alla Selfyssinga til að mæta og styðja stelpurnar okkar.

---

Katla Björg átti stórgóðan leik í kvöld og skoraði 5 mörk
Umf. Selfoss / IH