Úrslit í fjórða Grýlupottahlaupinu 2015

Frjálsar Grýlupottahlaupið 017
Frjálsar Grýlupottahlaupið 017

Tæplega 150 hlauparar luku fjórða Grýlupottahlaupi ársins 2015 sem fór fram á Selfossvelli laugardaginn 9. maí.

Besta tímann hjá stelpunum átti Harpa Svansdóttir sem hljóp á 3:10 mín en Benedikt Fadel Farag átti besta tímann hjá strákunum, 2:51 mín.

Hlaupaleiðin er sú sama og í fyrra og vegalengdin rúmir 850 metrar.

Úrslit úr hlaupinu má finna á fréttavefnum Sunnlenska.is með því að smella á hlekkina hér fyrir neðan.

4. Grýlupottahlaup 2015

3. Grýlupottahlaup 2015

2. Grýlupottahlaup 2015

1. Grýlupottahlaup 2015

Myndir úr öðru hlaupi ársins má finna á Fésbókarsíðu Umf. Selfoss.

Fimmta hlaup ársins fer fram nk. laugardag 16. maí. Skráning hefst kl. 10:30 og er fólk hvatt til að mæta tímanlega til að forðast biðraðir.

Allir sem lokið hafa fjórum hlaupum fá viðurkenningu og verður verðlaunaafhending laugardaginn 6. júní kl. 11:00 við Tíbrá, félagsheimili Ungmennafélags Selfoss.

Athugasemdir og ábendingar um hlaupið má gjarnan senda til Þuríðar Ingvarsdóttur á netfangið thuryingvars@gmail.com.

Guðmundur Kr. Jónsson formaður félagsins og ræsir athugar hvort allt sé í lagi fyrir ræsingu.
Ljósmynd: Umf. Selfoss/Gissur Jónsson