Viljayfirlýsing um uppbyggingu íþróttamannvirkja við Engjaveg

Umf. Selfoss - Viljayfirlýsing Viktor og Gísli
Umf. Selfoss - Viljayfirlýsing Viktor og Gísli

Á aðalfundi Ungmennafélags Selfoss sem fram fór í félagsheimilinu Tíbrá þann 4. apríl sl. var skrifuðu Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri Árborgar og Viktor S. Pálsson formaður Umf. Selfoss undir viljayfirlýsingu um að uppbygging íþróttamannvirkja á Selfossvelli verði í samræmi við tillögur Alark arkitekta sem hafa verið lagðar fram til kynningar í bæjarstjórn Árborgar og aðalstjórn Ungmennafélags Selfoss.

Fyrsti áfangi uppbyggingarinnar felur í sér hálft yfirbyggt fjölnota íþróttahús með aðstöðu fyrir frjálsar íþróttir og knattspyrnu auk þess sem göngustígur liggur hringinn í kringum knattspyrnuvöllinn. Fram kom á aðalfundinum að stefnt er að því að bjóða fyrsta áfanga út í maí.

Það er von beggja aðila að uppbyggingin muni ganga vel á næstu árum en þótt fyrsti áfangi sé kominn af stað eru aðilar meðvitaðir um að eftir er að tímasetja næstu áfanga en sú vinna verði unnin á næstu mánuðum og lögð fyrir bæjarstjórn haustið 2019.

---

Það voru Gísli bæjarstjóri (t.v.) og Viktor formaður sem skrifuðu undir yfirlýsinguna. Þétt að baki þeim standa Guðbjörg Jónsdóttir formaður íþrótta- og menningarnefndar og Tómas Ellert Tómasson formaður framkvæmda- og veitustjórnar.
Ljósmynd: Sv. Árborg