Vormót HSK á Selfossvelli laugardaginn 19. maí

Vormót HSK, 19. maí 2012 - 1. mótið í mótaröð FRÍ 2012

Frjálsíþróttaráð HSK býður til Vormóts HSK á Selfossi, sem um leið er fyrsta mótið af sex í Mótaröð FRÍ sumarið 2012. Vormótð verður haldið laugardaginn 19. maí á Selfossvelli og hefst það kl. 13:00. Keppt verður í 18 greinum á vormótinu og eru þær eftirfarandi:

Karlar: 100m, 300m, 110m gr, 800m, 4x100m boðhlaup, hástökk, þrístökk, spjótkast, sleggjukast.

Konur: 100m, 300m, 100 gr, 800m, 4x100m boðhlaup, hástökk, langstökk, spjótkast, kringlukast.

Skráningarfrestur er til kl. 24:00, þriðjudaginn 15. maí n.k. Hægt er að skrá sig til kl. 17:00, föstudaginn 18. maí gegn þreföldu skráningargjaldi.

Drög að tímaseðli má sjá á mótaforriti FRÍ

Verðlaun, gjafabréf fyrir tvo á veitingastað, verða veitt fyrir fyrsta sæti í 10 greinum á vegum FRÍ ef þátttakendur í greinunum verða að minnsta kosti fjórir. Jafnframt verður ilmur, svitalyktareyðir og sturtusápa úr Usain Bolt línunni frá PUMA í verðlaun í 100m og 300m hlaupi karla og kvenna . Verðlaunagreinarnar tíu eru eftirfarandi:

100m, 300m, og 800m hlaup, hástökk og spjótkast hjá báðum kynjum. Í öðrum greinum veitir mótshaldari verðlaun fyrir fyrsta sæti.

Mótið er opið og eru allir velkomnir á Selfossvöll!.

Nánari upplýsingar veita Ólafur Guðmundsson verkefnisstjóri frjálsíþróttaráðs HSK, GSM 867-7755 eða áolafur@ml.is og Benóný Jónsson, formaður frjálsíþróttaráðs HSK, GSM 868-7657 eða á binni@veidimal.is

Vormót HSK er fyrsta mótið í sex móta Mótaröð FRÍ. Verður mótaröðin einnig stigakeppni en fyrirkomulag hennar verður kynnt næstu daga.