Um deildina

Júdódeild Umf. Selfoss var stofnuð árið 1986 og hefur deildin starfað óslitið síðan. Iðkendur hafa verið nokkrir tugir í gegnum árin og í upphafi afmælisársins 2016 voru þeir um 50 talsins. Árangur deildarinnar á mótum hefur verið afar góður seinustu ár.

Virkni iðkenda og foreldra þeirra í félagstarfi deildarinnar er afar mikilvæg. Því eru allir sem áhuga hafa á að styðja við deildina með sjálfboðavinnu hjartanlega velkomnir. Vinsamlegast hafið samband við einhvern stjórnarmanna deildarinnar.