Silfurverðlaun og tvö HSK met í Gautaborg

Eva María Gautaborg
Eva María Gautaborg

Þrjú ungmenni frá Frjálsíþróttadeild Selfoss tóku þátt í Gautaborgarleikunum í frjálsum íþróttum sem haldnir voru dagana 28.-30.júní í Gautaborg.  Mótið er mjög fjölmennt og sterkt og virkilega vel að því staðið.  

Eva María Baldursdóttir, 16 ára, stökk 1.71m í hástökki og náði þeim frábæra árangri að vinna til silfurverðlauna. Dönsk stúlka hafði sigur með því að stökkva yfir 1.71m í fyrstu tilraun en Eva María fór yfir í annarri tilraun.  Eva María sýndi og sannaði enn einu sinni hversu framarlega hún stendur í sinni grein.

Dagur Fannar Einarsson, 17 ára, keppti i mörgum greinum og stóð sig mjög vel.  Hann setti tvö HSK met í flokki 16-17 ára og var framarlega í öllum greinum.  Hann bætti eigið met í 300m grindahlaupi þegar hann hljóp á tímanum 40,96s og varð í 10.sæti.  Í 400m hlaupi bætti hann 22 ára gamalt met Auðuns Jóhannssonar þegar hann varð í 12.sæti á tímanum 51,86s.  Dagur Fannar stökk 6.45m í langstökki sem dugði í 10.sæti, í 1110m grindahlaupi varð hann í 12.sæti á tímanum 16,28s og spjótinu kastaði hann 49,99m sem dugði í 14.sæti.  Að lokum hljóp hann 100m á 11,83s.  Dagur Fannar er virkilega fjölhæfur og mjög mikið tugþrautarefni.

Hildur Helga Einarsdóttir, 17 ára, kastaði sig inn í úrslit í kúluvarpi með því að kasta 12,04 og ná 8.sæti og spjótinu kastaði  hún 37,09m og endaði í 11.sæti.  

Virkilega flottur árangur hjá þessum efnilegum íþróttamönnum