Fjögur lið úr 4. flokki Fimleikadeildar Selfoss kepptu á Haustmóti Fimleikasambands Íslands um helgina. Við áttum tvö lið á yngra ári og tvö á eldra ári. Mótið fór fram í Egilshöll þar sem umgjörðin var til fyrirmyndar.
Liðin okkar sýndu flottar æfingar og það var gaman að fylgjast með þeim njóta sín á gólfinu. 4. flokkur 1 keppti í dansgöllum í fyrsta sinn og höfðu gaman af því að fá að frumsýna þá :)
Á Haustmótinu eru stigin notuð sem viðmið fyrir veturinn og engin verðlaun veitt. Á næsta móti fá liðin gull, silfur eða brons eftir því hversu háum stigum þau ná.
Við erum stolt af öllum fjórum liðunum og hlökkum til að fylgjast með þeim í vetur. Framtíðin er björt hjá þessum flottu iðkendum!
4. flokkur 2 voru glæsilegar á mótinu.
Samstarfsaðilar Fimleikadeildar Selfoss eru HSH þrif og flutningar, Íslandsbanki, Bílverk BÁ og Hótel Geysir.