Afhentu heimahjúkrun HSU á Selfossi 6.732.729

Þeir Aron Fannar Birgisson, leikmaður Selfoss og Þorsteinn Daníel Þorsteinsson, leikmaður Árborgar, færðu heimahjúkrun HSU á Selfossi í morgun ágóðann sem safnaðist í styrktarleiknum í síðustu viku, alls 6.732.729.

Þar mættust Selfoss og Árborg í 16-liða úrslitum Gatorade-bikarsins. Leikurinn var jafnframt styrktarleikur fyrir Helgu Guðmundsdóttur, móður Arons Fannars, en hún lést í byrjun síðustu viku. Að ósk Helgu rann allur ágóði leiksins til heimahjúkrunar HSU á Selfossi en það var þjónusta sem hún þurfti að nýta sér í sínum veikindum.

Við styrknum tóku þær Margrét Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarstjóri heilsugæslu HSU á Selfossi og Anna Margrét Magnúsdóttir aðstoðarhjúkrunarstjóri heilsugæslu HSU á Selfossi.

,,Heimahjúkrun á HSU Selfossi þakkar Helgu Guðmundsdóttur, fjölskyldu hennar og öllum þeim sem sem lögðu lið við styrkarleik Selfoss og Árborgar þann 8. júlí 2026. Það er mikill heiður að þau skulu ánafna heimahjúkrun ágóðanum og við erum orðlaus yfir þeirri upphæð sem safnaðist. Einnig öllum þeim stuðningi sem samfélagið sýndi. Þetta er mikil viðurkenning á okkar mikilvæga starfi og kemur þetta framlag til með að efla það enn frekar með tækja og búnaðarkaupum. Fyrir hönd heimahjúkrunar segjum við STÓRT TAKK”

Fjöldi fyrirtækja, einstaklinga og sjálfboðaliða hjálpuðu til við að gera leikinn að veruleika. Knattspyrnudeild Selfoss og Knattspyrnufélag Árborgar vilja færa innilegar þakkir til allra þeirra fyrirtækja og einstaklinga sem lögðu verkefninu lið. Stuðningur ykkar skipti sköpum í þessu verkefni og það er ómetanlegt að sjá samfélagið okkar stendur saman þegar á þarf að halda.

Hér má sjá lista yfir þau fyrirtæki sem studdu okkur í verkefninu:

Ölgerðin

Stubbur

Röstí

Nettó

Prentverk Selfoss

Fagform

Kjörís

Hótel Selfoss

Kjötbúrið

Bíóhúsið

Pylsuvagninn

Starfsfólk Nettó á Selfossi

Starfsfólk Pylsuvagnsins