Alexander Adam Íslandsmeistari

Mótokross - Alexander Adam Kuc
Mótokross - Alexander Adam Kuc

Fjórða og síðasta umferð Íslandsmeistaramótsins í mótokross fór fram um seinustu helgi í Bolaöldu. Alexander Adam Kuc sigraði örugglega í unglingaflokki með fullt hús stiga eftir sumarið og landið þar með Íslandsmeistaratitlinum. Hann lenti í þriðja sæti í flokknum MX2 sem skilaði honum líka í þriðja sæti í þeim flokki til Íslandsmeistara. Eric Máni Guðmundsson varð í fyrsta sæti í unglingaflokk yngri.

Þess má geta að Alexander Adam var á dögunum valinn sem varamaður í íslenska landsliðið í mótokross sem keppir á Motocross of Nations lok september í Mantova á Ítalíu. Undirbúningur fyrir mótið er í fullum gangi og óskum við íslenska liðinu góðs gengis.

Umf. Selfoss/rb

---

Alexander Adam æfir með íslenska landsliðinu fyrir mót á Ítalíu í september.
Ljósmynd: Umf. Selfoss