Anna Metta setur 3 héraðsmet í hálfmaraþoni

Anna Metta Óskarsdóttir.
Anna Metta Óskarsdóttir.

Anna Metta Óskarsdóttir, Umf. Selfoss, hlaup í hálfmaraþoni í Vormaraþoni Félags maraþonhlaupara síðastliðinn laugardag. Þar náði hún frábærum árangri, hljóp á tímanum 1:57,02 klst. og setti héraðsmet í 3 aldursflokkum, 16-17 ára, 18-19 ára og 20-22 ára.