Áslaug Dóra með U17

Screenshot 2020-02-17 at 09.28.12
Screenshot 2020-02-17 at 09.28.12

Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir leikmaður Selfoss ferðaðist í síðustu viku með U17 ára liði Íslands til Írlands.

Áslaug Dóra skoraði mark U17 ára liðs Íslands í vináttuleik gegn Írlandi úti á Írlandi í gær, sunnudag. Lokatölur urðu 1-1, Írland komst yfir í fyrri hálfleik en Áslaug Dóra skoraði mark Íslands eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik og jafnaði metin. Fyrri leikur liðanna fór fram á föstudag og lauk honum einnig með jafntefli, 2-2.

Áslaug Dóra bar fyrirliðabandið í leikjunum tveimur og stóð sig vel, var sér og sínu félagi til sóma.