Áslaug Ýr framlengir við Selfoss

Áslaug Ýr
Áslaug Ýr

Markvörðurinn Áslaug Ýr Bragadóttir hefur framlengt samning sinn við Selfoss um tvö ár eða til loka leiktíðarinnar 2015/2016. Áslaug hefur leikið 43 leiki fyrir Selfoss og verið mikilvægur hlekkur í ungu og efnilegu liði Selfoss sem hefur leikið í efstu deild síðustu tvö tímabil.

Mikil ánægja er innan félagsins að hafa tryggt Áslaugu áfram næstu tvö árin og er það liður í áframhaldandi uppbyggingu Selfoss á starfi kvennahandboltans. Fleiri frétta er að vænta af leikmannamálum Selfoss næstu daga og vikur.