Átröskun og líkamsímynd

ISI-logo
ISI-logo

Vekjum athygli á opnum hádegisfundi ÍSÍ miðvikudaginn 27. apríl nk. þar sem fjallað er um hver sé staða átröskunnar og líkamsímyndar á meðal íslensk íþróttafólks. Fundurinn fer fram í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal og hefst kl. 12:10. Þar verða kynntar niðurstöður úr glænýrri rannsókn og fer Petra Lind Sigurðardóttir MSc í klínískri sálfræði frá HR yfir helstu niðurstöðurnar.

Rannsóknin beindist að skimun fyrir átröskunareinkennum meðal íþróttafólks hér á landi. Samanburður var gerður á þessum þáttum milli kynja, auk þess sem íþróttagreinar voru bornar saman. Þátttakendur voru íþróttafólk sem keppir á hæsta keppnisstigi í sinni íþrótt hérlendis, 18 ára og eldri. Nánast engar rannsóknir hafa verið gerðar á þessu viðfangsefni hérlendis og fáar erlendar rannsóknir hafa borið margvíslegar íþróttir saman.

Er íþróttafólk óánægðar með sína líkamsímynd en almennt gengur og gerist? Eru karlar líklegri til að vera óánægðari en konur? Hversu algeng er átröskun og í hvaða greinum birtist hún helst? Að lokinni framsögu mun verða opið fyrir spurningar úr sal.

Þátttakan er ókeypis og öllum heimil. Skráning fer fram á skraning@isi.is.