Barbára framlengir út 2022

Barbára Sól Gísladóttir
Barbára Sól Gísladóttir

Landsliðskonan Barbára Sól Gísladóttir hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Selfoss út keppnistímabilið 2022.

Þrátt fyrir að vera nítján ára gömul er Barbára einn leikreyndasti leikmaður Selfossliðsins en hún hefur leikið 92 meistaraflokksleiki fyrir félagið, þar af 50 í efstu deild. Hún var valin í A-landsliðið í fyrsta skipti síðasta haust og lék þá tvo landsleiki. Áður hafði hún leikið 36 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Selfoss hefur lánað Barbáru til skoska úrvalsdeildarliðsins Celtic og mun hún leika með liðinu fram á vor, þangað til keppni hefst í Pepsi Max deildinni.

„Ég er mjög ánægð með að framlengja á Selfossi, hér er frábært umhverfi fyrir leikmenn og ég mun klárlega halda áfram að bæta mig hérna. Markmiðið er auðvitað að verða enn betri leikmaður, spila fleiri landsleiki og vera í hópnum sem fer á Evrópumeistaramótið sumarið 2022. Um leið er ég glöð með að félagið leyfði mér að fara á láni til Skotlands. Það er mjög spennandi að fara út og öðlast reynslu í nýju landi. Ég sleppi undirbúningstímabilinu á Selfossi en það verður geggjað að komast í fótbolta í vetur og ég mæti aftur fersk þegar tímabilið byrjar hérna heima,“ segir Barbára Sól.