Bónusmótið 2025

Hart var tekist á á mótinu
Hart var tekist á á mótinu
Bónusmótið 2025 var haldið helgina 25. - 27. apríl en það er stærsta handboltamót sem haldið er ár hvert, en í ár voru um 850 keppendur, u.þ.b. 350 stelpur og 500 strákar úr 7. flokki. Mótið var virkilega vel heppnað, en það þarf mörg handtök til að taka vel á móti rúmlega 850 kátum krökkum á gistimót. Við sendum bestu þakkir og risa hrós á ykkur öll sem gerðuð þetta með okkur.
 
Það væri ekki ofsögum sagt að það hafi verið líf í bænum og þá sér í lagi í Set höllinni og Vallaskóla á meðan á mótinu stóð. Það er alltaf gaman að fá að sjá myndir af stemningunni og óhætt að segja að einbeiting og gleði hefi verið við völd innan vallar sem og utan.
Við þökkum auðvitað öllum frábæru gestunum okkar fyrir samveruna, þið voruð frábær.
 
Með fylgja myndir frá Sporthero sem teknar voru á mótinu