Dagur Fannar setti HSK met í tugþraut

Frjálsar - Dagur Fannar Einarsson
Frjálsar - Dagur Fannar Einarsson

Dagur Fannar Einarsson keppandi fyrir Umf. Selfss var á meðal keppenda á Meistaramóti Íslands í fjölþrautum sem haldið var í Reykjavík dagana 23. og 24. júní sl. Dagur stóð sig frábærlega og varð annar í tugþraut í flokki 16 – 17 ára og stórbætti HSK metið í sínum flokki. Dagur fékk samtals 5.602 stig í þrautinni. Hann bætti sinn persónulega árangur í þremur greinum, eða 1.500 m hlaupi, hástökki og spjótasti. Styrmir Dan Steinunnarson átti gamla metið sem var 5.284 stig.

Marta María Bozovic Siljudóttir keppti í sjöþraut í flokki 16 – 1 ára og varð önnur með 2.920 stig og bætti sig í 200 m hlaupi.

Úr fréttabréfi HSK