Danskur leikmaður til Selfoss

Sarah Boye
Sarah Boye

Sarah Boye, örvhentur hornamaður, hefur samið við handknattleiksdeild til eins árs. Sarah er 21 árs gömul frá Danmörku og spilaði áður með liði HIH Herning Ikast Håndbold í Danaveldi.

Sarah er kærkomin viðbót við liðið enda ekki margir örvhentir leikmenn kvennamegin, mun hún því koma til með að styrkja hóp meistaraflokk kvenna.